Fréttir
Vörur - Vörulisti
Gæðastaðlar
Starfsmenn
Fyrirtækið
Hafðu samband
Guðjón Margeirsson lætur af störfum10. apr 2012
Guðjón Margeirsson einn af stofnendum Egersund Ísland hefur látið af störfum sökum aldurs en Guðjón varð sjötugur í síðasta mánuði.

Egersund Ísland vill þakka Guðjóni kærlega fyrir samstarfið í gegn um árin og óskum við honum alls hins besta í framtíðinni.

Fiskeldisráðstefna Egersund Ísland og Egersund Net10. apr 2012
Í marsmánuði var haldin fiskeldisráðstefna á vegum Egersund Ísland og Egersund Net. Frá Egersund Net komu þeir Geir Kåre Tonnessen sölustjóri og Geirmund Vik yfirmaður rannsókna og þróunnar og héldu fyrirlestra um fiskeldismál.

Ráðstefnan heppnaðist afar vel og viljum við koma á framfæri þökkum til þeirra sem sáu sér fært að mæta og vonum að slíkt geti orðið árlegur viðburður í framtíðinni.

Ný nót um borð í Hákon EA18. nóvember 2011
Hákon EA-148 tók nýverið á móti nýrri loðnunót í Bergen í Noregi. Nótin var hönnuð og uppsett af AS Fiskenett en þess má geta að AS Fiskenett er hluti af Egersund Group en Egersund Island ehf. hafði milligöngu um kaupin. Nótin er 90 faðma djúp og 340 faðma löng og kemur til með að nýtast Hákoni EA vel á komandi vertíðum.

Óskar Egersund Island ehf. ásamt Egersund Group áhöfninni á Hákoni EA og Gjögri ehf. til hamingju með nýtt og stórglæsilegt veiðarfæri.

Egersund Island ehf - Hafnargötu 2- 730 Eskifjörður - S: +354 470 6700 - Fax: +354 470 6709